Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Benvenuti ai giorni italiani!

02.05.2007

 

 

Í maí fögnum við komu sumarsins með því að slá upp ítalskri veislu í vínbúðunum. Við flöggum ítalska fánanum og er hinn mikli menningararfur landsins í brennidepli, en vínið er jú stór hluti hans. Bækling með þemavínunum má nálgast í öllum vínbúðunum, en að þessu sinni prýða hann fjórar ljúffengar uppskriftir að ítölskum réttum. Þemadagarnir standa yfir frá 1. – 31. maí. Nú er bara að mæta í vínbúðirnar og kynna sér hvaða eðalveigar Ítalía hefur uppá að bjóða.