Fréttir
07.08.2007
Nú er nýtt og ferskt Vínblað á leið í vínbúðir. Að þessu sinni er blaðið stútfullt af fróðlegu og skemmtilegu efni, umfjöllun um grillmat- og vín, girnileg uppskrift að Norðan og þróun í sölu áfengra drykkja svo fátt eitt sé nefnt. Það er því ráð að skella sér í næstu vínbúð og næla sér í glóðvolgt eintak af nýju Vínblaði!
02.08.2007
Afgreiðslutími vínbúða um verslunarmannahelgina er með hefðbundnum hætti, nema annað sé sérstaklega tekið fram. LOKAÐ er mánudaginn 6.ágúst. Afgreiðslutími í Vínbúðinni Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgi er sem hér segir...
21.07.2007
Vikan fyrir verslunarmannahelgi er ein annasamasta vika ársins í vínbúðunum. Á síðasta ári komu tæplega 110 þúsund viðskiptavinir í vínbúðirnar þessa viku, en í hefðbundinni viku í júlí koma á milli 70 og 80 þúsund viðskiptavinirnir í vínbúðirnar.
Föstudagur er langstærsti söludagurinn í vínbúðunum þessa vikuna, sem aðrar, en milli 30‐35 þúsund viðskiptavinir koma í vínbúðirnar þann dag.
13.07.2007
Viðtökur viðskiptavina vegna nýrrar vínbúðar í Skeifunni eru vonum framar. Að sögn Regínu Arngrímsdóttir verslunarstjóra eru viðskiptavinir afar ánægðir með nýju Vínbúðina og þá sérstaklega aðgengið og staðsetninguna. Jafnframt er búðin rúmgóð og bjórkælir er í Vínbúðinni sem gleður margan viðskiptavininn. Starfsfólkið er jafnframt ánægt enda um að ræða bjarta og skemmtilega vínbúð.
10.07.2007
Nú hefur ný vínbúð opnað á Hellu. Þar með eru vínbúðirnar orðnar 47 talsins svo viðskiptavinir geta fengið sömu vönduðu þjónustuna um land allt...
05.07.2007
Leonardó da Vinci er starfsmenntahluti Menntaáætlunar Evrópusambandsins, en árlega eru veittir styrkir til mannaskiptaverkefna þar sem fólki í starfsnámi, fólki á atvinnumarkaði og leiðbeinendum eða stjórnendum er gefinn kostur á að afla sér starfsþjálfunar allt frá einni viku til þrjátíu og níu vikna...
03.07.2007
Ný vínbúð á Hellu opnar í dag, miðvikudaginn 4.júlí, klukkan 14:00. Þar með eru vínbúðirnar orðnar 47 talsins svo viðskiptavinir geta fengið sömu vönduðu þjónustuna um land allt.
03.07.2007
Verð á áfengi lækkaði að meðaltali um 0,03% 1. júlí en engin verðbreyting var á tóbaki. Verðskrá tóbaks má nálgast [hér].
28.06.2007
Viðtökur viðskiptavina vegna opnunar vínbúðar í Skeifunni 5 eru framar vonum. Sölutölur fyrstu daganna eftir opnun gefa til kynna að tímabært var að opna vínbúð á þessu svæði.
13.06.2007
Höfum opnað nýja og glæsilega verslun í Skeifunni 5. Starfsfólk Vínbúðarinnar í Holtagörðum, sem nú hefur verið lokað, hefur flutt og mun nú þjónusta viðskiptavini sína á nýjum stað.
Afgreiðslutími vínbúðarinnar verður 9-20 virka daga, en 11-18 á laugardögum. Verið velkomin!