Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Hvað drekka Íslendingar í dag?

24.08.2007

Hvað drekka Íslendingar í dag?Úr grein í Vínblaðinu (ágúst 2007)

Það er forvitnilegt að skoða hver þróunin hefur orðið í sölu á áfengum drykkjum á Íslandi undanfarin ár.  Þar er mesta breytingin í neyslumynstrinu að verða í neyslu bjórs.  Sala hans hefur aukist jafnt og þétt síðustu árin, en aukningin milli áranna 2005 og 2006 var til dæmis um 8%.

Sala á rauðvíni hefur einnig verið að aukast gríðarlega á undanförnum árum og sala hvítvíns hefur aukist um hálfa milljón lítra á ári frá árinu 1998.

Á þessum sama tíma hefur sala á brenndum áfengum drykkjum verið að dragast saman í heildina.  Vodka, Gin, Koníak, Viskí  og margskonar snafsar hafa dalað í sölu á meðan bjórinn og léttvínin hafa verið að ná sífellt meiri sölu.  Á síðasta ári var skipting sölunnar hjá vínbúðunum þannig að bjórinn var 78% af sölunni, léttvín og styrkt voru 18,13% og því það sterka eða brennda einungis um 3,83% af heildarsölu ÁTVR í lítrum talið.