Fréttir
29.08.2007
Um er að ræða almenn lagerstörf í dreifingarmiðstöð.
28.08.2007
Vegna framkvæmda við Stuðlaháls, er aðgengi að Vínbúðinni Heiðrúnu eingöngu frá Lynghálsi (að neðanverðu).
24.08.2007
Það er forvitnilegt að skoða hver þróunin hefur orðið í sölu á áfengum drykkjum á Íslandi undanfarin ár.
21.08.2007
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri Reykjavíkur hefur farið þess á leit við ÁTVR að sölu á bjór í stykkjatali verði hætt í Vínbúðinni og jafnframt að hætt verði að selja kældan bjór. Erindi borgarstjóra hefur verið svarað.
17.08.2007
Um 108 þúsund viðskiptavinir lögðu leið sína í vínbúðirnar í vikunni fyrir verslunarmannahelgina sem er í við færri en í sömu viku á síðasta ári...
17.08.2007
ÁTVR hefur borist erindi frá borgarstjóra þar sem óskað eftir að hætt verði að selja bjór í stykkjatali í Vínbúðinni Austurstræti.
Erindi borgarstjóra er í hefðbundnum farvegi og verður svarað innan tíðar. ÁTVR hyggst svara bréfi borgarstjóra áður en niðurstaða málsins verður kynnt fjölmiðlum.
14.08.2007
Vegna frídags verslunarmanna er LOKAÐ í vínbúðum, mánudaginn 6.ágúst.
14.08.2007
Áfengi í hillum og listaverk á veggjum- svo hljómaði fyrirsögn greinar um Vínbúðina Kringlunni sem birtist í Morgunblaðinu þann 8. ágúst 1987. Vínbúðin átti ásamt Kringlunni 20 ára afmæli mánudaginn 13. ágúst. Vínbúðin Kringlunni skipar sess í sögu ÁTVR. Vínbúðin var fyrsta sjálfsafgreiðsluverslunin en fram að því höfðu viðskiptavinir einungis getað verslað áfengi 'yfir borðið' í þeim fjórum vínbúðum sem voru í Reykjavík. Það vakti því óneitanlega ánægju viðskiptavina að geta sjálfir gengið á milli hillna og valið það sem þeim leist best á.
13.08.2007
Mikið var um að vera á 20 ára afmæli Kringlunnar mánudaginn 13.ágúst. Viðskiptavinir Vínbúðarinnar í Kringlunni gæddu sér á kaffi og súkkulaði á meðan þeir skoðuðu úrvalið í Vínbúðinni. Við óskum Kringlunni innilega til hamingju með daginn!
07.08.2007
Nú er nýtt og ferskt Vínblað á leið í vínbúðir. Að þessu sinni er blaðið stútfullt af fróðlegu og skemmtilegu efni, umfjöllun um grillmat- og vín, girnileg uppskrift að Norðan og þróun í sölu áfengra drykkja svo fátt eitt sé nefnt. Það er því ráð að skella sér í næstu vínbúð og næla sér í glóðvolgt eintak af nýju Vínblaði!