Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Fréttatilkynning: Innköllun á rauðvíni Amalaya de Colemé 2005

26.10.2007

 Innköllun á rauðvíni Amalaya de Colemé 2005

Glerbrot hefur fundist í rauðvínsflösku af tegundinni Amalaya de Colomé 2005.

 

ÁTVR og Vífilfell hf. biðja viðskiptavini sem hafa þessa vöru undir höndum að skila henni í næstu vínbúð við fyrsta tækifæri þar sem hún verður endurgreidd.

 

Varan hefur verið tekin úr sölu úr öllum vínbúðum ÁTVR og dreifing stöðvuð tímabundið.

 

Gallinn hefur fundist í einni flösku með lotunúmerið L-A106 (sjá mynd).