Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Hefur þú leitað í vörulistanum?

23.10.2007

Hefur þú leitað í vörulistanum?Hjálparleitin í vörulistanum auðveldar þér leitina, allt frá því að finna vínið með matnum, eða jafnvel finna bjórinn frá uppáhalds landinu þínu. Auðvelt er að finna hvaða vín hentar t.d. með lambinu, fiskinum eða grillmatnum með því að haka við matartáknin í hjálparleitinni.

Einnig er hægt að leita að uppáhaldsvíninu með því að rita nafn vínsins eða hluta af nafni þess í "vöruheitisreitinn" í hjálparleitinni. Til að fá ítarlegri upplýsingar um vín á listanum, smellir þú á heiti viðkomandi víns.

Hægt er að velja yfirflokk í vörulistanum (léttvín, bjór...) með því að smella á vöruflokkamyndirnar hér að ofan.