Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Verðbreytingar 1. október 2007

02.10.2007

Nýr tóbakspöntunarlisti var gefinn út í dag 1. október.  Helstu breytingar eru þær að neftóbak hækkaði um 4%, en engin önnur verðbreyting varð á tóbaki.  Neftóbak hefur ekki hækkað síðan 2005 þrátt fyrir aukinn kostnað við framleiðsluna.  Heildarverðbreyting í áfengi að þessu sinni er 0,11% til lækkunar.

Einnig er bent á að Kent Blue (03640) breytist þannig að það verður 03640 Kent Blue Futura KSF.