Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Auglýst eftir húsnæði fyrir Vínbúð í Reykjanesbæ

09.10.2007

Óskað eftir húsnæði á leigu fyrir Vínbúð í Reykjanesbæ, á bilinu 350-450 fermetra á jarðhæð.
Húsnæði þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum:

  • Vera á skilgreindu miðbæjarsvæði í aðalskipulagi Reykjanesbæjar.
  • Vera á jarðhæð og á bilinu 350-450 fermetrar.
  • Húsnæðið verður að fullnægja öllum kröfum sem opinberar eftirlitsstofnanir og umsagnaraðilar gera til slíks og samþykkt af þeim.
  • Góð aðkoma fyrir viðskiptavini og næg bílastæði fyrir þá.
  • Góð aðkoma fyrir flutningabíla með vörur og vörulyftara.
  • Sérstaklega er lögð áhersla á meðal annars gott aðgengi hreyfihamlaða, birtulýsingu (500-600 lux) og hljóðdempun í verslun ásamt góðri aðstöðu starfsfólks.

Áhugasamir skulu senda öll gögn um það húsnæði sem þeir hyggjast bjóða í lokuðu umslagi til skrifstofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík fyrir 18 október 2007.

Merkt : 14334 - Leiga á húsnæði fyrir Á.T.V.R. í Reykjanesbæ

Gögn þurfa meðal annars að innihalda eftirfarandi:

  1. Staðsetning
  2. Teikningar af húsnæði
  3. Afhendingartími
  4. Ástand húsnæðis við afhendingu
  5. Leiguverð á fermetra með virðisaukaskatti. Í leiguverðinu skal vera tilgreindur allur kostnaður sem til fellur.
  6. Leigutími