Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Tuborg jólabjór áfram í vínbúðunum

07.12.2007

Tuborg jólabjór áfram í vínbúðunumÍ morgun var frétt í 24 stundum um aðskotahlut í Tuborg jólabjórflösku. Þegar í stað var brugðist við með því að stöðva sölu á umræddri vöru í öllum vínbúðum. Eftir staðfestingu frá Ölgerðinni um að hér væri um einstakt tilvik að ræða hefur sú ákvörðun verið tekin að hefja sölu aftur á umræddri tegund.
Í bréfi sem Ölgerðin hefur sent til ristjórnar 24 stunda í tilefni fréttarinnar stendur meðal annars: „Því miður virðast óhöpp á borð við þetta geta hent þrátt fyrir að framleiðslan og eftirlit með henni séu samkvæmt ströngustu kröfum sem þekkjast og verður farið vandlega yfir málið með framleiðendum.