Fréttir
22.02.2016
Vínbúðin Akranesi var opnuð 17. febrúar eftir gagngerar endurbætur. Lagfæringar og breytingar voru gerðar á öllu húsnæðinu auk þess sem ný kassaborð voru sett upp. Viðskiptavinir voru mjög jákvæðir meðan á framkvæmdum stóð þrátt fyrir mikið rask og er mikil ánægja með breytinguna. Búðin er nú sérlega björt og falleg auk þess sem öll vinnuaðstaða hefur verið bætt til muna.
Við bjóðum viðskiptavini velkomna í breytta og bætta Vínbúð á Akranesi.
11.02.2016
Vínbúðin fékk hæstu einkunn allra fyrirtækja í niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar, sem kynnt var í morgun. Þetta er þriðja árið í röð sem viðskiptavinir gefa Vínbúðinni hæstu einkunn. Vínbúðin fékk einkunnina 73,8. Til samanburður var meðaltal allra fyrirtækja í mælingunni 63,0.
Íslenska ánægjuvogin er könnun sem Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og Capacent Gallup standa sameiginlega að. Markmið Ánægjuvogarinnar er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana svo sem ímynd, mat á gæðum og tryggð viðskiptavina.
09.02.2016
Páskabjórinn er nú kominn í Vínbúðirnar, en alls verða 11 tegundir í sölu þetta árið. Sala á Páskabjór hefst í dag Sprengidag
26.01.2016
Vinbudin.is hefur verið tilnefndur einn af fimm bestu opinberu vefum landsins.
22.01.2016
ÁTVR og Oddi hafa tekið höndum saman í verkefni sem lýtur að endurvinnslu á notuðu plasti sem fellur til í starfsemi ÁTVR. Markmiðið er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og minnka myndun úrgangs. Verkefnið er liður í því að minnka umhverfisfótspor, en bæði fyrirtækin skrifuðu nýverið undir yfirlýsingu um loftslagsmál ásamt fleiri íslenskum fyrirtækjum.
20.01.2016
Vegna umræðu um rekstur og afkomu ÁTVR í fjölmiðlum vill ÁTVR taka fram að allt frá því að ÁTVR var komið á fót hefur verslunin verið rekin með hagnaði.
11.01.2016
Sölutímabil þorrabjórs hefst fimmtudaginn 21.janúar, en tímabilið stendur til 20.febrúar
05.01.2016
Í Vínbúðunum geta viðskiptavinir valið að kaupa margnota poka sem hægt er að nota aftur og aftur í stað einnota plastpoka.
04.01.2016
Talning verður í Vínbúðunum mánudaginn 4. janúar. Lokað er á meðan á talningu stendur en sumar
02.01.2016
Um áramót breytist virðisaukaskattur á áfengi, fer úr 24% í 11%. Á sama tíma hækka áfengisgjöld.