kokteilsíðu Vínbúðanna má finna úrval uppskrifta af girnilegum kokteilum, bæði áfengum og óáfengum, sem henta flestum tilefnum.. " />
Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Fjölbreytt úrval kokteila

08.08.2023

Á kokteilsíðu Vínbúðanna má finna úrval uppskrifta af girnilegum kokteilum, bæði áfengum og óáfengum, sem henta flestum tilefnum. 

Vínráðgjafar Vínbúðanna hafa sett saman frábærar leiðbeiningar fyrir sérhvern kokteil þar sem bent er á erfiðleikastig, hentuga glasategund til að bera kokteilinn fram í og hvaða áhöld er gott að hafa við höndina. Þá er einnig hægt að smella á innihaldsefnin og sjá hvað er til í vörusafni Vínbúðanna hverju sinni. Einnig er mjög þægilegt að geta leitað eftir tegundum og jafnvel hvort stendur til að bjóða upp á drykkinn fyrir eða eftir mat, í veislu eða bara til að njóta í sumarblíðunni. Fyrir þá þemaglöðu er einnig hægt að flokka kokteilana eftir litum.

KOKTEILSÍÐA