Fréttir
29.05.2019
Lokað er fimmtudaginn 30. maí, en miðvikudaginn 29. maí verða allar Vínbúðir opnar eins og um föstudag sé að ræða. Á höfuðborgarsvæðinu verður því opið frá 11-19, en lengur á Dalvegi, Skeifu og Skútuvogi þar sem opið er frá 9-20.
08.05.2019
Þessa dagana er unnið hörðum höndum við endurbætur á Vínbúðinni Reykjanesbæ. Búðin verður öll endurskipulögð og sett í nýjan búning auk þess sem vöruval verður aukið töluvert. Áætlað er að verklok verði í byrjun júní, en til að raska þjónustu sem allra minnst verður búðin opin að mestu leyti á meðan framkvæmdum stendur. Þó verður lokað mánudagana 20. maí og 27. maí.
30.04.2019
Lokað verður í öllum Vínbúðum á frídegi verkamanna, miðvikudaginn 1. maí.
Opið verður lengur í Vínbúðum þriðjudaginn 30.apríl, eða eins og um föstudag sé að ræða.
23.04.2019
Lokað verður í öllum Vínbúðum á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25.apríl. Miðvikudaginn 24. apríl verður opið eins og um föstudag sé að ræða. Einnig verður lokað í Vínbúðum miðvikudaginn 1.maí, en opið lengur 30.apríl eins og á föstudegi.
17.04.2019
Vínbúðirnar verða lokaðar á skírdag, föstudaginn langa og annan í páskum skv. venju. Einnig verður lokað sumardaginn fyrsta 25.apríl...
12.04.2019
Ársskýrsla ÁTVR 2018 er komin út, nú í fjórða sinn á rafrænu formi. Í skýrslunni má finna ítarlegar upplýsingar um starfsemi, rekstur og sundurliðanir á sölu áfengis og tóbaks.
15.03.2019
Nú er páskabjórinn kominn í Vínbúðirnar, en um um 14 tegundir verða til sölu í ár. Líkt og aðrar árstíðabundnar vörur er páskabjórinn seldur í takmarkaðan tíma, en sölutímabilið stendur til 20.apríl.
14.03.2019
Vínbúðin Skeifunni hefur nú opnað aftur eftir gagngerar breytingar. Kælir hefur verið stækkaður til muna og búðarrýmið allt verið endurgert. Einnig voru gerðar töluverðar breytingar á aðstöðu fyrir starfsfólk sem og lagerrými stækkað verulega.
01.03.2019
1. mars voru 30 ár síðan bjórinn var leyfður aftur á Íslandi eftir 74 ára bann. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá , en árið 1989 voru t.a.m. 7 bjórtegundir í sölu en þær eru nú orðnar um 590.
27.02.2019
Ákveðið hefur verið að kolefnisjafna allt millilanda- og innanlandsflug starfsfólks ÁTVR fyrir árið 2018 og hefur samningur verið gerður við Votlendissjóðinn.