Fréttir
05.09.2024
Í nýlega útgefnum Sjálfbærnivísi PwC 2024 var greint frá því að ÁTVR var eitt af þeim níu fyrirtækjum sem tókst að sýna fram á samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda frá eigin starfsemi og virðiskeðju. Árið 2018 fór ÁTVR að birta upplýsingar á vöruspjaldi flestra vara á vinbudin.is um áætlað kolefnisspor umbúða, en umbúðir eiga stærsta hluta kolefnissporsins.
06.08.2024
Sumarið er tilvalið til að prófa nýjar og spennandi uppskriftir í mat og drykk, sama hvernig viðrar. Á uppskriftavef Vínbúðarinnar má nálgast fjöldan allan af uppskriftum fyrir ýmis konar tækifæri. Þegar sólin lætur sjá sig er tilvalið að kíkja á grilluppskriftir eða spennandi og fersk salöt, en í rigningarveðri er notalegt að skella í haustlega pottrétti eða annan kósímat og jafnvel para með góðu víni.
29.07.2024
Nú er ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum framundan, en margir viðskiptavinir leggja leið sína til okkar fyrir verslunarmannahelgi.
Allt kapp er lagt á að taka vel á móti viðskiptavinum svo allt gangi sem best fyrir sig, en fyrir þá sem vilja forðast raðir er gott að huga að því að vera tímanlega! Gott ráð er að kíkja við fyrri part vikunnar og fyrri part dagsins. Yfirleitt er mest að gera á föstudeginum, en flestir koma í Vínbúðirnar á milli kl. 16 og 18. Í einstaka tilfella þarf að grípa til þess ráðs að hleypa viðskiptavinum inn í hollum.
27.06.2024
Íslendingar eru eflaust þjóða bestir í nýta hvern sólageisla sem glittir í til að bjóða í grillveislu, skella í pottapartý eða flatmaga á pallinum með girnilegan kokteil í glasi. Þá kemur vinbudin.is sér vel, því þar má nálgast fjölda uppskrifta af girnilegum grillmat og ljúffengum kokteilum, bæði áfengum og óáfengum. Tilvalið er að frysta ber eða ávexti í litlum kúlum, bitum eða sneiðum og nota sem klaka í frískandi sumardrykki. Hér eru dæmi um nokkra kokteila sem gaman er að prófa sig áfram með að blanda og skreyta svo af hjartans list, njótið vel!
13.06.2024
Þjóðhátíðardagur Íslendinga er haldinn hátíðlegur mánudaginn 17.júní, en við bendum viðskiptavinum á að þá er lokað í Vínbúðunum.
05.06.2024
Því miður verður ekki hægt að opna Vínbúðina við Mývatn vegna ófærðar í dag, miðvikudaginn 5. júní.
16.05.2024
Árs – og samfélagsskýrsla ÁTVR er komin út á rafrænu formi. Í skýrslunni má finna ítarlegar upplýsingar um rekstur og starfsemi fyrirtækisins..
06.05.2024
Nú höfum við opnað nýja og glæsilega Vínbúð í Álfabakka 6 (við hlið Garðheima). Lokað hefur verið í Stekkjarbakka!
06.05.2024
Lokað er í öllum Vínbúðum á uppstigningardag fimmtudaginn 9 maí. Miðvikudaginn 8. maí verða flestar Vínbúðir opnar eins og um föstudag sé að ræða. Á höfuðborgarsvæðinu verður því opið frá 11-19, en lengur á Dalvegi, Skeifu, Skútuvogi og Álfrúnu þar sem opið er frá 10-20..
30.04.2024
Við minnum viðskiptavini á að lokað er í öllum Vínbúðum á verkalýðsdaginn, miðvikudaginn 1. maí, sem er lögboðinn frídagur á Íslandi.