Í dag hefst formleg sala á jólabjór þó enn séu nokkrar vikur til jóla. Í ár verða um 80 tegundir í sölu, sumar í margvíslegum umbúðum eins og mismunandi stærðum af dósum og flösku. Það er ekkert svo ógurlega langt síðan það voru örfáar tegundir í boði og margar þeirra keimlíkar. Í dag sjáum við hins vegar að fjölbreytileikinn hefur tekið við stjórnina og við fögnum því. Þannig eru í boði allt frá léttari lite bjórum til þéttra stout bjóra. En hvernig áttu að komast að því hvað er best að smakka?
Í þessum tilfellum er ágætt að byrja á eigin smekk. Það er heilmikið úrval af allskyns bjór og því er algjör óþarfi að pína ofan í sig eitthvað sem manni finnst ekki gott. Ef maður vill víkka aðeins út sjóndeildarhringinn getur verið gott að setjast niður með hóp af fólki sem er til í að prófa jólabjóra, hvort sem þeir eru nýir eða hafa verið ár eftir ár. Hver og einn getur komið með eina tegund, eða hópurinn lagt í púkk og svo eru mismunandi bjórar keyptir.
Lykillinn er svo að vera með glös sem eru ekki allt of stór því þá fer gjarnan meira magn fyrir hvern og einn. 50-100 ml á mann getur verið ágætt þegar það er verið að smakka því ef viðkomandi finnst ekki gott það sem er í glasinu þá er ekki svo mikið sem fer til spillis. Sumir taka smökkunina mjög alvarlega og útbúa einhvers konar einkunnakerfi þar sem besti jólabjórinn er valinn. Á endanum er smekkur okkar ólíkur og það sem einum finnst best finnst öðrum verst.
Á heimasíðu okkar má finna allt það úrval af jólavörum sem koma í búðirnar fyrir jól en þar er líka hægt að panta allt það úrval sem er í boði og fá sent í næstu búð.
Léttari bjórar hafa verið afar vinsælir undanfarið og eru því farnir að vera meira áberandi í jólaflóðinu. Þessir bjórar eru að öllu jöfnu með lægra áfengisinnihaldi en hefðbundnir lagerbjórar. Bragðeinkennin geta verið ólík eftir tegundum og því alltaf gott að lesa bragðlýsingu hillumiðans. Flestir eiga það sameiginlegt að bera fínleg malteinkenni hvíts brauðs, sumir hafa bragðeinkenni þurrkaðra ávaxta eins og apríkósur og epli á meðan aðrir hafa ferskari bragðeinkenni eins og til dæmis mandarínu eða appelsínu. Það má þó heilt yfir segja að bjórar í þessum flokki séu bragðminnstu lagerbjórarnir. Beiskleiki bjóranna er í minna lagi og er til þess fallinn að gefa bjórnum jafnvægi.
Mikið af jólabjórum eru bjórar sem hafa aðeins dekkri lit og eru því meira rafgullnir og jafnvel út í rafbrúnan lit. Þeir hafa einnig ríkjandi bragðeinkenni af dekkra brauði, karamellu eða kandís og þurrkuðum ávöxtum og eru töluvert bragðmeiri en ljósari og léttari lagerbjórar. Beiskjan er stundum aðeins meiri en í lite bjórunum til að koma til móts við örlítið meiri sætu, þó bjórarnir séu oftast ósætir. Alkóhólprósentan er ívið hærri en í lite bjórunum og getur verið mismunandi eftir stíl og framleiðanda. Í þessum hóp eru flestir jólabjórar og margir hverjir sem hafa komið í hillur búðanna ár eftir ár.
Það er alltaf ánægjulegt að sjá hvað súrbjórum hefur vaxið ásmegin í jólabjóraflóðinu, þó þeir séu ekki margir. Sumir eru vissulega súrari en aðrir, á meðan sýran í sumum gefur bjórnum mikinn ferskleika. Mismunandi hvaða bragð er af þessum bjórum, allt frá berjabragði yfir í mysu eða eplaedik og því best að rýna í bragðlýsinguna á hillumiðanum til að átta sig á hvaða bragðeinkenni er að finna.
Stout og Porter bjórar eru að öllu jöfnu með bragðmestu bjórunum þar sem ríkjandi bragðeinkenni eru dekkri brauð eins og rúgbrauð, en þar finnast líka bragðeinkenni eins og kaffi og súkkulaði. Þeir eru gjarnan þéttir í fyllingu, með einhverri sætu sem jafnast út með hærra alkóhóli og stundum meiri beiskju. Oft má finna stout bjóra sem hafa verið bragðbættir, t.d. með ákveðnum tegundum af súkkulaði eða öðru nammi, sírópum eða þeir hafa fengið að liggja í tunnum sem hafa áður geymt einhvern annan vökva sem skilar í bragðeinkenni bjórsins.
Það má alltaf leita til starfsfólks okkar sem getur leiðbeint ykkur, ef þið eruð ekki viss um hvaða tegund þið ættuð að velja eða prófa. Þessi listi er aðeins brot af því sem þið getið prófað svo endilega skoðið jólavörulistann.

Berglind Helgadóttir DipWSET
Vínsérfræðingur