Vín með haustréttunum

Haustið er tími uppskeru og þegar kuldinn og myrkrið læðist að eigum við það til að bera á borð aðra rétti en við gerum í sól, birtu og  sumaryl. Salötin fá að víkja fyrir matarmiklum súpum og fiskurinn fyrir lambakjötinu. Sömuleiðis virðist hvítvínið víkja fyrir rauðvíninu, enda segja matarpörunarfræðin að það henti betur með þessum þyngri réttum... eða hvað? 

Í fyrsta lagi þá er yfirleitt betra að velja eitthvað sem manni finnst gott. Ég mæli vissulega með að víkka sjóndeildarhringinn út öðru hvoru og þá er starfsfólk okkar í búðunum góðir áttavitar í þeim leiðangri. Segið þeim bara hvað tegund ykkur finnst best.  

En víkjum okkur aftur að rauðvíninu. Kröftugri og bragðmeiri vín henta gjarna betur með kröftugri mat eins og kjötréttum. Frá langflestum löndum er hægt að finna eitthvað við hæfi, en klassísk matarpörun með lambinu eru vínin frá Rioja. Þar skiptir smekkurinn máli því hægt er að velja vín sem eru ávaxtarík, léttari og fersk, en líka vín sem eru kraftmeiri, þyngri og þroskaðri sem hafa gjarnan legið í mismunandi tegundum af tunnum til lengri eða styttri tíma. Rauðvín frá Ribera del Duero eru gjarna kröftugri, með þéttari tannín, hærri sýru og meiri ávöxt. Hér má lesa grein um Reserva frá Rioja. 

Einnig er hægt að skoða rauðvín t.d. frá Toskana, Bordeaux eða suður- Frakklandi. Barolo gæti líka verið góður kostur fyrir þá sem vilja aðeins fínlegri og þroskaðari vín sem eru um leið með kröftugum tannínum.  

Léttari rauðvín 

Fyrir þau sem vilja léttari rauðvín eru joven eða crianza frá Rioja ágætis valkostur en einnig væri hægt að skoða léttari Valpolicella, Pinot Noir frá suður Frakklandi, eða Bandaríkjunum.  

Vín með örlítilli sætu 

Þau sem vilja hafa smá sætu sem gjarnan birtist í meiri mýkt geta skoðað vín frá Suður Ítalíu til dæmis Primitivo frá Puglia, vín frá syðri hluta Portúgal, og í nýja heiminum er vert að kíkja á Ástralíu eða Bandaríkin. Ef þú ert í vafa er hægt að setja smásætt eða sætuvottur í vöruleitina og fá upp þau vín sem hafa þessi orð í bragðlýsingu.  

Ef þú hins vegar ert ekki rauðvínstýpan og vilt fá þér hvítvín með lambakjötinu eða bragðmikilli súpunni, þá er bara um að gera að prófa það. Stundum getur verið ágætt að taka bragðmeiri og kröftugri hvítvín. Hvítvínin frá Alsace þykja frábær kostur í matarpörun, kröftugri hvítvínin frá Rioja, og svo má ekki gleyma nýja heiminum, eins og Chardonnay frá Bandaríkjunum, Chile eða Argentínu.  

Ef þú ert enn í vafa yfir öllum þessum möguleikum þá geturðu alltaf spurt starfsfólk okkar í næstu Vínbúðarferð.
 


Berglind Helgadóttir DipWSET
Vínsérfræðingur