Uppskera 2026

Nú þegar október er runninn upp er langt liðið á uppskerutíma á norðurhveli jarðar. 

Með árunum hefur upphaf uppskeru stöðugt færst framar í dagatalinu. Er það einkum rakið til hlýnunar jarðar, þar sem hækkandi meðalhiti flýtir fyrir þroskaferli berjanna. Það er þó ekki endilega jákvætt því vínberið þarf ákveðinn tíma til að þroskast og oftar en ekki er betra að það flýti sér hægt.  

En hvers vegna er alltaf verið að pæla í árgöngum? 

Hér áður fyrr þegar þekking á ræktun vínviðar og tækni í víngerð var skemmra á veg komin, höfðu vínframleiðendur ekki eins haldbæra þekkingu og vísindalega tækni til þess að vinna vel með hráefnið þannig að útkoman yrði gott vín. Sveiflur í veðri milli ára voru því greinilegri í vínunum þar sem kaldari og blautari ár skiluðu sér í ákveðnum einkennum á meðan heitari og þurrari ár skiluðu sér í öðrum. Með aukinni þekkingu tækla vínframleiðendur því betur sveiflur í veðri. Það þýðir þó ekki að þeir nái að sjá náttúruöflunum við í hvert skipti sem þau sýna mátt sinn. En að öllu jöfnu hafa gæði vínframleiðslu farið upp á við og meira jafnvægi skapast á milli árganga þannig að munur á vínum milli árganga er ekki eins greinilegur og hann var á áratugum áður.  

Hægt er að finna árgangatöflur á netinu þar sem hægt er að skoða hvernig árgangar hafa verið. Gjarnan koma þessar töflur upplýsingum til fólks um það hvenær sé best að drekka flöskuna, til dæmis að það sé ágætt að drekka núna 2012 árganginn í Sauternes.  

Hér er til dæmis að finna árgangatöflur frá: Wine Spectator  og The Wine Enthusiast .

 

                     Njótið vel!


Berglind Helgadóttir DipWSET
Vínsérfræðingur