Lugana liggur við suðurströnd Gardavatns, á landamærum héraðanna Veneto og Lombardíu. Svæðið hefur öðlast sífellt meiri athygli síðastliðin ár og líklegast skemmir ekki fyrir þegar Íslendingar flykkjast að Gardavatni í sumarfrí.
Helsta þrúga svæðisins er Turbiana, sem gekk áður undir heitinu Trebbiano di Lugana. Hún er þó ekkert skyld Trebbiano heldur náskyld þrúgu sem kallast Verdicchio á öðrum svæðum. Turbiana gefur vín með sítrus-, epla- og stundum heslihnetutónum. Sumir framleiðendur þroska hluta af sínum bestu vínum í eik. Betri vín frá þessu svæði geta elst vel í yfir fimm ár.
Hvítvínin frá Lugana eru framleidd í nokkrum mismunandi stílum. Lugana DOC hvítvínin eru fersk og ávaxtarík, ætluð til að njóta á meðan þau eru tiltölulega ung. Lugana Superiore þarf að þroskast lengur áður en það kemur á markað og hefur yfirleitt meiri fyllingu og dýpt. Lugana Riserva fær enn lengri þroskun og býður upp á flóknari bragðeinkenni og góða geymslugetu. Einnig eru framleidd freyðivín undir heitinu Lugana Spumante og sæt eftirréttarvín sem kallast Lugana Vendemmia Tardiva og eru gerð úr síðtýndum þrúgum.
Lugana hvítvín með ferskri sýru hentar vel með til dæmis fiski, skelfiski, sushi, salötum og grænmetisréttum. Fyllri útgáfur eins og Superiore og Riserva henta vel með rjómalöguðum pastaréttum, kjúklingi, ljósu kjöti og þroskuðum ostum.
Hér má finna þau Lugana vín sem eru í sölu hjá Vínbúðunum og velkist þið í vafa um hvar í hillunum þau er að finna má alltaf spyrja starfsfólk okkar.

Berglind Helgadóttir DipWSET
Vínsérfræðingur