Argentína er hvað þekktust fyrir rauðvín úr Malbec þrúgunni en önnur berjategund sem vert er að skoða er Torrontés. Hún er ein þekktasta hvítvínsþrúga Argentínu og var árið 2021 meira ræktuð en Chardonnay þar í landi.
Torrontés er einstaklega ilmrík, en hún hefur það ekki langt að sækja því talið er að hún eigi rætur sínar að tekja til Muscat of Alexandria. Þéttir ávaxtatónar vínberja, sítrus- og jafnvel steinávaxta í bland við þétta blómatóna er það sem einkennir þessa þrúgu. Ilmurinn og bragðið er sætkennt en vínin eru oftast ósæt.
Þekktasta ræktunarsvæði Torrontés er Cafayete í Salta í norðvesturhluta Argentínu. Mikil hæð yfir sjávarmáli skilar sér í svölum nóttum sem hægja á þroska berjanna og auka þannig ilmrík einkenni þrúgunnar. Einnig þykir Torrontés sem ræktuð er í Uco dal í Mendoza gefa af sér góð vín. Framleiðendur Torrontés nota yfirleitt stáltanka í framleiðslunni, en þó er hægt að finna eintök sem hafa farið á tunnur eða legið á gerinu, sem þéttir áferð vínsins og eykur bragðflóruna.
Torrontés er einstaklega fjölhæft með mat. Ilmríkur karakter þess og fersk sýra gera það að frábærum félaga með asískri matargerð, sérstaklega réttum með engifer, kóríander og mildum kryddum. Það passar einnig vel með ceviche, grilluðum fiski, rækjum, kjúklingi, salötum og geitaosti. Í Argentínu er Torrontés gjarnan borið fram með empanadas eða öðrum hefðbundnum réttum sem innihalda krydd og ferskar jurtir.
Fyrir vínunnendur sem vilja prófa eitthvað öðruvísi en hefðbundnar evrópskar hvítvínsþrúgur er Torrontés áhugaverður kostur. Hér er listi yfir þær tegundir sem fást í Vínbúðunum.

Berglind Helgadóttir DipWSET
Vínsérfræðingur