Á að kæla rauðvín?
Stutta svarið er já, í mörgum tilfellum. Og hitastigið fer eftir víninu.
Hitastig rauðvína
Margir telja að rauðvín eigi alltaf að bera fram við stofuhita og er það langlíf mýta. Flest rauðvín njóta sín best þegar þau eru örlítið kæld og rétt hitastig getur haft mikil áhrif á ilm, bragð og heildarupplifun vínsins.
Stofuhiti er heldur ekki það sama og stofuhiti. Það er í raun ekkert svakalega langt síðan heimili gátu stjórnað hitastigi innandyra og víða í heiminum er mjög misjafnt hversu mikið heimili eru hituð eða kæld. Á íslenskum heimilum í dag er hitinn oft 21–24°C og þá getur rauðvínið orðið of heitt ef það er borið fram við stofuhita.
Ef hitastig rauðvíns er of hátt getur það misst ferskleika sinn, áfengið getur orðið meira áberandi og bragðið og heildarupplifun á víninu virkar oft þyngra.
Hvenær er þá gott að kæla rauðvín?
Ef rauðvín hefur verið geymt við stofuhita er yfirleitt góð hugmynd að setja það í ísskáp í stuttan tíma áður en það er borið fram.
Létt og ávaxtarík rauðvín
Létt rauðvín eins og Pinot Noir, Gamay og önnur fersk og ávaxtarík vín njóta sín sérstaklega vel við
12–15°C. Um 20–30 mínútur í kæli áður en flaskan er opnuð getur dregið fram ferskleikann.
Meðalfyllt rauðvín
Merlot, Sangiovese, Crianza frá Rioja, Côtes du Rhône, léttari Toskana og Valpolicella vín eru oft
best við 15–18°C. Stutt kæling í 15–20 mínútur getur hjálpað til við að draga fram jafnvægi og
ferskleika.
Kröftug rauðvín
Cabernet Sauvignon, Syrah og önnur kraftmeiri vín eru yfirleitt borin fram við 16–18°C.
Þó þau þoli hærra hitastig en léttari vín er sjaldnast æskilegt að þau séu yfir 20°C.
Stutt kæling í 10-15 mínútur getur verið nægileg til að kæla vínið.
Hvað ef vínið verður of kalt?
Ef rauðvín er of kalt geta ilmur og bragð orðið daufari. Það er þó auðvelt að leysa með því að leyfa víninu að standa í glasinu í nokkrar mínútur. Í útilegum og öðrum útiverum yfir sumartímann kælist vínið sjálfkrafa, eða helst kælt í glasinu.
Ef þú ert í vafa geturðu prófað að kæla rauðvínið frekar örlítið áður en það er borið fram. Ef þér finnst það verða ferskara við kælingu geturðu geymt flöskuna aðeins lengur í kæli en ef þér finnst vanta upp á bragðið leyfirðu henni að standa á borðinu. Lítil breyting á hitastigi getur haft áhrif á bragðið.

Berglind Helgadóttir DipWSET
Vínsérfræðingur