Alþjóðlegi gin dagurinn var 13. júní í ár en hann er haldinn hátíðlegur annan laugardaginn í júní ár hvert. Þá er kjörið tækifæri til að staldra við og skoða sögu, fjölbreytileika og þá þróun sem hefur átt sér stað í ginframleiðslu undanfarna áratugi.
Gin á sér langa og áhugaverða sögu sem nær aftur til 17. aldar. Drykkurinn á rætur sínar að rekja til Hollands þar sem hann var upphaflega þróaður sem lyfjadrykkur og barst síðar til Bretlands. Frá því að vera einfaldur drykkur með ríkulegu einiberjabragði hefur gin þróast í fjölbreyttan heim bragðtegunda þar sem framleiðendur nýta jurtir, krydd, blóm, sítrusávexti og jafnvel staðbundin hráefni til að skapa einstakar uppskriftir. Þannig er áhugavert hvernig íslenskir framleiðendur nýta sér íslenska náttúru til að gæða drykkinn einstökum bragðeinkennum.
Undanfarin ár hafa vinsældir gins aukist um allan heim. Handverksbrugghús og smáframleiðendur hafa komið fram á sjónarsviðið með skapandi nálgun sem hefur aukið fjölbreytni og gæði drykkjarins. Í dag má finna allt frá klassísku London Dry gin yfir í blómakennd, krydduð eða ávaxtarík afbrigði. Þá hafa einnig komið fram á sjónarsviðið fleiri litaafbrigði af gini, sem að öllu jöfnu er litlaust, en er nú til í bleikum, bláum og fleiri litum.
Fyrir marga er gin og tónik hinn klassíski drykkur. Fyrir innblástur í fjölbreyttum kokteilum þar sem gin er eitt af hráefnunum má skoða kokteilasíðuna okkar.
Gin dagurinn er því ekki aðeins tilefni til að skála heldur einnig til að kynna sér handverkið á bak við framleiðsluna og þá miklu ástríðu sem liggur að baki hverri flösku. Hvort sem fólk kýs klassískt gin og tónik, fágaðan kokteil eða einfaldlega að fræðast meira um sögu drykkjarins, þá er dagurinn kjörið tækifæri til að njóta þess sem ginheimurinn hefur upp á að bjóða.