Hvít Sangría

Það kannast flestir við Sangríu með rauðvíni, en það er lítið mál að búa til Sangríu úr hvítvíni. 

Hvað er gott að hafa í huga við val á áfengi í sangríu? 

Hvítvínið 

Ferskleiki. Gott er að velja tiltölulega ungt hvítvín, og það má koma hvaðan sem er. Til glöggvunar þá getur verið ágætt að kíkja á bragðlýsingar og velja vín sem hefur ávaxtarík einkenni, eins og epli, sítrus, nektarínu eða jafnvel melónu.  

Sætt eða ekki sætt? Þar liggur smekkurinn. Ef ykkur finnst sætari vín betri þá er gott að velja vín með smásætu eða hálfsætt. Ef þið viljið hafa Sangríuna minna sæta þá er gott að velja vín sem er ósætt eða mögulega með sætuvotti. Ef þið eruð í einhverjum vafa er hægt að setja þessi orð inn í vöruleitina og sjá hvað kemur upp, eða spyrja starfsfólkið í Vínbúðunum.  Ef hvítvín með örlítilli sætu er valið er ágætt að hafa í huga að önnur innihaldsefni séu ekki yfirdrifin sætu svo drykkurinn verði ekki væminn. 

Fyrir bragðupplifunina er mikilvægt að hafa jafnvægi milli sætu og sýru í huga. Það þýðir að ef mikil sæta er í áfenginu, eða ávöxtunum, sem er notað er mikilvægt að bæta við sýru á móti. Það er gert til dæmis með því að nota sítrusávexti, eins og appelsínu, sítrónu, límónu eða greip, allt eftir smekk hvers og eins. 

Ef þið smakkið Sangríuna og finnst vanta sætu í hana er hægt að bæta við einföldu sírópi sem auðvelt er að gera heima þar sem jafnir hlutar af sykri og vatni er hitað saman. Það er líka hægt að bæta við sætkenndari ávöxtum eins og vel þroskuðum ananas eða mangó eða berjum eins og jarðarberjum eða hindberjum.   

 
Sangría bragðbætt með sterku áfengi 

Sé notað sterkt áfengi er gott að hafa í huga bæði bragðeinkenni þess og sætu. Á hillumiðum Vínbúðanna eru lýsingar á bragðeinkennum og ef þau eru ákjósanleg fyrir sangríuna, þá er um að gera að velja það. Á hillumiðunum má líka fá upplýsingar um sætu, sem skiptir máli fyrir samsetninguna. Einnig er mjög hentugt að slá inn leitarorð eins og appelsína, jarðarber, ferskja, ananas eða annað sem þið mynduð vilja sækjast eftir í leitarvélina á vefnum okkar og sjá hvaða möguleika þið fáið upp.  

 

Uppskriftir 

Ýmsar útgáfur og uppskriftir eru til á netinu, svo það er um að gera að prófa sig áfram. Á kokteilsíðunni hér á vinbudin.is er að sjálfsögðu að finna uppskrift að hvítri sangríu. En hafið áfram í huga að ef þið bætið vökva með kolsýru, hvort sem það er gosdrykkur eða freyðivín, þá er gott að hafa sykurmagn í huga og velja tegund í samræmi við það. 

Ávextirnir geta verið af ýmsum toga en ekki má gleyma heldur kryddum eins og mintu eða rósmarín sem gætu sett punktinn yfir i-ið. 

Til þess að allt smelli svo saman er kjörið að bera sangríuna fram í fallegri könnu með áhaldi til að varna því að allir ávextirnir detti úr í eitt glas. Það má hella sangríunni í hvaða glas sem er, hvort sem það er hefðbundið vínglas á fæti, vatnsglas eða annað fallegt glas. Svo held ég að það þurfi ekkert endilega að bíða eftir sólinni. 


Berglind Helgadóttir DipWSET
Vínsérfræðingur