Ljósgullinn, óskír. Sætuvottur, mjúkur, meðalbeiskja. Normalbrauð, suðrænir ávextir, límó Sjá meira
Ljósgullinn, óskír. Sætuvottur, mjúkur, meðalbeiskja. Normalbrauð, suðrænir ávextir, límónubörkur.
Belgískur IPA
Tiltölulega nýr bjórstíll sem er ennþá í þróun. Það sem gerir þennan stíl “belgískan” er að notast er við belgískt gerafbrigði sem gefur hinn týpíska belgíska gerkarakter. Þessir bjórar hafa yfirleitt nokkuð háan vínanda og hafa yfirleitt þurrari endingu en hinir týpísku IPA bjórar.
IPA
Þessum flokki tilheyra allir þeir bjórar sem teljast til IPA, hvort sem þeir koma frá Bandaríkjunum, Bretlandseyjum eða annars staðar frá. IPA eða India Pale Ale er öl sem á rætur sínar að rekja til Bretlands og einkennist í dag í flestum tilfellum af mjög áberandi bragði af þeim humlum sem notaðir eru í framleiðslunni. Bragðeinkenni geta t.d. verið sítrus, trjákvoða, og suðrænir ávextir og innihalda yfirleitt nokkuð mikla beiskju. Vínandastyrkur getur verið frá 4,5% til 10%.Bjórar í þessum flokki eru bestir framreiddir við um 7-10°C Sjá minna