Gullinn, óskír. Sætuvottur, mjúkur, meðalbeiskja. Brauðdeig, sítrus, kókos, kakó Sjá meira
Gullinn, óskír. Sætuvottur, mjúkur, meðalbeiskja. Brauðdeig, sítrus, kókos, kakó.
Cream Ale
Cream Ale er stíll sem má rekja til 19. aldar Bandaríkjanna. Þessir bjórar eru gerjaðir við hátt hitastig og þrátt fyrir að kallast “ale”, þá geta framleiðendur notast við bæði ölger eða lagerger við framleiðslu. Cream Ale eru fremur ljós að lit og hafa oft nokkuð létta munnfyllingu, en oft er einmitt notast við maís eða hrísgrjón til þess að létta fyllinguna. Beiskja er í lægri kantinum en þó eru til dæmi um nokkuð beiska bjóra af þessum stíl. Léttir ávaxtaríkir tónar frá gerjun geta svo einkennt þessa bjóra upp að vissu marki.
Amerískt og breskt öl
Mjög fjölbreyttur flokkur af breskum ölstílum sem hafa fengið endurnýjun lífdaga í amerískum handverksbrugghúsum. Hér er að finna bjóra sem geta verið ljósir að lit, léttir og bragðmildir eða bjóra sem eru mjög maltaðir, hafa háan vínandastyrk, þéttir og beiskir. Erfitt er að gera grein fyrir ákveðnum bragðeinkennum þar sem fjölbreytnin er mikil en þó má segja að ameríski stíllinn sé í flestum tilvikum beiskari og hafi meira áberandi ilm og bragð af humlum.Bjórar í þessum flokki eru bestir framreiddir við um 7-10°C Sjá minna