Dökkbrúnn. Hálfsætur, mjúkur, lítil beiskja. Rúgbrauð, dökk karamella, Sjá meira
Dökkbrúnn. Hálfsætur, mjúkur, lítil beiskja. Rúgbrauð, dökk karamella, lakkrís.
Maltbjór
Hér er að finna bjóra sem eru, eins og nafnið gefur til kynna, mjög maltaðir. Einkenni þessara bjóra eru oft nokkur til mikil maltsæta og fremur lítil beiskja. Malzbier er þýska heitið og eru þar oftar en ekki áfengislausir.
Þýskt öl
Þekktastir eru Altbier frá Dusseldorf og Kölsch frá Köln. Báðir þessir stílar eru lageraðir/geymdir á tönkum í nokkrar vikur áður en þeir eru settir á markað og eru kallaðir obergaerige lagerbier eða yfirgerjaður lagerbjór af heimamönnum. Hitastig gerjunar er ekki alveg nægilega hátt til þess að skila af sér eins ávaxtaríkum einkennum eins og þekkist í öðru öli, og einkennast því þessir bjórar því frekar af maltinu og humlunum sem notast er við. Af þessum tveimur stílum er Kölsch ljósari að lit og fínlegri á meðan Altbier er dekkri, maltaðri og beiskari. Algengur vínandastyrkur er 4,5% til 5,5%.Bjórar í þessum flokki eru bestir framreiddir við um 4-7°C Sjá minna