Rafgullin. Sætuvottur, þéttur, miðlungsbeiskja. Ristað malt, karmella, þurrkaðir ávextir, Sjá meira
Rafgullin. Sætuvottur, þéttur, miðlungsbeiskja. Ristað malt, karmella, þurrkaðir ávextir, margslunginn.
Barley Wine
Barley Wine eru dökk öl þar sem maltkarakterinn skiptir mestu máli. Þau eru þétt, hafa háan vínandastyrk og yfirleitt þónokkra sætu. Bandarísku útgáfurnar eru yfirleitt beiskari en þær bresku, og hafa meira áberandi humlaeinkenni.
Amerískt og breskt öl
Mjög fjölbreyttur flokkur af breskum ölstílum sem hafa fengið endurnýjun lífdaga í amerískum handverksbrugghúsum. Hér er að finna bjóra sem geta verið ljósir að lit, léttir og bragðmildir eða bjóra sem eru mjög maltaðir, hafa háan vínandastyrk, þéttir og beiskir. Erfitt er að gera grein fyrir ákveðnum bragðeinkennum þar sem fjölbreytnin er mikil en þó má segja að ameríski stíllinn sé í flestum tilvikum beiskari og hafi meira áberandi ilm og bragð af humlum.Bjórar í þessum flokki eru bestir framreiddir við um 10-13°C Sjá minna