Rekjanleikakerfi fyrir tóbaksvörur
Ein helsta breyting sem fylgir nýjum tóbakslögum er að allir einingapakkar tóbaksvöru sem seldir verða á Íslandi skulu merktir með einkvæmu auðkenni (e. Unique Identifier). Með því verður hægt að rekja feril vöru frá framleiðenda til fyrsta smásala.
Framleiðendur, innflytjendur, heildsalar, vörugeymslur og flutningsaðilar þurfa að skanna vörur inn og út til staðfestingar á því hvaða vara er stödd á hvaða stað og hvenær. Þessir aðilar þurfa að aðlaga tæknilausnir að rekjanleikakerfinu til að geta tekið þátt.
Auk þessara aðila þurfa smásalar einnig að skrá sig í rekjanleikakerfið en ekki er krafa um skönnun hjá þeim.
Í reglugerð nr. 480/2025, Reglugerð um rekjanleikakerfi fyrir tóbaksvörur, eru skilgreindar kröfur um rekjanleikakerfið og jafnframt vísað til evrópskra krafna.
Ísland fylgir hefðbundinni nálgun ríkja innan ESB við innleiðingu rekjanleikakerfisins. Kerfið hér á landi verður því sambærilegt við kerfið í Svíþjóð og Finnlandi svo dæmi séu tekin. Í því felst meðal annars að framleiðendur / innflytjendur þurfa að koma sér upp aðalgagnahirslu (e. primary repository) fyrir skráningu þeirra vara. Öll gögn frá rekjanleikakerfinu á Íslandi verða meðhöndluð í aukagagnahirslu (e. secondary repository) sem Dentsu Tracking rekur fyrir ESB.
Vakin er athygli á því að önnur lönd utan ESB geta valið aðrar leiðir en hefðbundnu leið ESB landanna. Dæmi um slíkt er Bretland sem gerir ekki kröfu um aðalgagnahirslur hjá framleiðendum. Ísland fylgir hins vegar hefðbundu leið ESB landanna í rekjanleikakerfinu.
Í handbók ESB fyrir hagaðila í evrópska rekjanleikakerfinu er lýst helstu hlutverkum hagaðila. Auk þess eru nánari upplýsingar um rekjanleikakerfi ESB á vefsvæðinu „Systems for tobacco tracability and security features“ (sjá hlekk að neðan).
Reglugerðin öðlast gildi 1. maí 2026 og þurfa allir rekstraraðilar að vera skráðir í kerfið fyrir þann tíma.
Skráning í rekjanleikakerfið er opin á vefsvæðinu idissuer.is. Fyrirtækið AllSoftCorp er útgefandi auðkenna fyrir Ísland og annast rekstur skráningarkerfisins.
Kröfur um viðvörunarmerkingar, heiti og umbúðir
Reglugerð 1250/2024 um útlit og viðvörunarmerkingar tóbaksvara, losun skaðlegra tóbaksefna, mæliaðferðir og skýrslugjöf tekur gildi 1. maí 2025. Þó öðlast ákvæði um einsleitar umbúðir ekki gildi fyrr en 24 mánuðum eftir gildistöku.
Í reglugerðinni eru ákvæði um útlit, stærð og lögun tóbaksvöru og mynd- og textaviðvaranir um skaðsemi tóbaks. Fjallað er um merkingar og umbúðir í kafla IV og tengdum viðaukum.
Í grein 20 er fjallað um einsleitar umbúðir tóbaksvara sem tekur gildi 1. maí 2027.
Í bráðabirgðaákvæðum er veitt heimild til að fylgja áfram eldri reglugerð 790/2011 um viðvörunarmerkingar:
- Til 1.5.2026 má flytja inn vörur
- Til 1.11.2026 má hafa vörur í sölu
Bann við sölu
Með breyttum lögum 6/2002 um tóbaksvarnir er 6 gr. b fjallað um vörur sem er óheimilt að selja á Íslandi.
Sígarettur og vafningstóbak með einkennandi bragði verður óheimilt að selja eftir 11. janúar 2028. Á það einnig við um vörur sem innihalda bragðefni í einhverjum efnisþætti.
Í greininni er jafnframt fjallað um aðrar tóbaksvörur sem er óheimilt að selja m.a. vegna aukefna.
Einnig er óheimilt að selja munntóbak á Íslandi.