Við óskum eftir tímavinnustarfsfólki um helgar í Vínbúðir á höfuðborgarsvæðinu.
Við leitum að jákvæðum, glaðlyndum og þjónustuliprum einstaklingum sem eru tilbúnir að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
- Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
- Umhirða búðar
Hæfnikröfur
- Jákvæðni og góð þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
Starfshlutfall er breytilegt eftir þörfum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri.
Sakavottorðs er krafist.
ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.
Nánari upplýsingar: Thelma Kristín Snorradóttir -
starf@vinbudin.is - 560 7700.
Sækja um starf