Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Fréttatilkynning frá ÁTVR

17.05.2021

Að undanförnu hafa sprottið upp vefverslanir sem selja áfengi í smásölu hér á landi, beint til neytenda. Starfseminni er beint gegn lögbundnum einkarétti Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis, sem hefur verið ein grunnstoða íslenskrar áfengisstefnu. 

Þrátt fyrir afdráttarlaus ákvæði áfengislaga og laga um verslun ríkisins með áfengi og tóbak um einkaleyfi ÁTVR til þess að selja og afhenda áfengi í smásölu fullyrða rekstraraðilar vefverslananna að starfsemi þeirra sé lögleg. Óhjákvæmilegt er að fá úr því skorið hjá til þess bærum aðilum. ÁTVR hefur því hafið undirbúning að beiðni um lögbann á hendur vefverslununum og höfðun dómsmáls í framhaldi af því. Samhliða er hafinn undirbúningur lögreglukæru vegna starfseminnar.

Einkaréttur ríkisins til smásölu áfengis byggir á lýðheilsusjónarmiðum og því mati löggjafans að markmiðum um heilsu þjóðarinnar verði ekki náð með öðru og vægara móti. Verði starfsemi vefverslana í beinni samkeppni við smásölu ÁTVR látin óáreitt felur það í sér grundvallarbreytingu á áfengisstefnunni og forsendum fyrir rekstri fyrirtækisins.