Vínbúðirnar hafa nú hætt dreifingu á brúnum einnota bréfpokum sem ætlaðir voru fyrir eina flösku. Framkvæmdin er liður í því að gera Vínbúðirnar enn umhverfisvænni, en við leggjum áherslu á að vera leiðandi í umhverfisábyrgð.
Á síðasta ári seldu Vínbúðirnar rúmlega 41 þúsund margnota poka og jókst salan um 27% á milli ára. Á undanförnum þremur árum hafa verið seldir um 109 þúsund margnota pokar og því ljóst að viðskiptavinum er mjög umhugað um að minnka einnota umbúðir. Talsvert hefur dregið úr sölu plastpoka á milli ára. Samdráttur í sölu plastpoka var 6,5% á milli ára á meðan viðskiptavinum fjölgaði um 4%. Á árinu 2017 var fjöldi viðskiptavina rúmlega 4,9 milljónir og seldir plastpokar voru 1,5 milljón.
Við þökkum skilninginn og hvetjum viðskiptavini eindregið til að velja fjölnota fyrir framtíðina.
![Ábyrg neyslu, verndun jarðarinnar og líf undir vatni](Portaldata/1/Resources/frettir/2017/Heimsmarkmid_trju.jpg)
Efni þessarar fréttar tengist Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, m.a. um ábyrga neyslu, verndun jarðarinnar og líf undir vatni.