Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Plastið kostar sitt!

09.01.2018

Frá og með 1. janúar 2018 hækkum við verð á plastpokum í Vínbúðunum og kostar pokinn nú 40 kr.
Hækkunin, sem nemur 10 krónum, rennur óskipt til Pokasjóðs sem úthlutar styrkjum til góðra málefna sem heyra undir almannaheill.

Í Vínbúðunum er úrval fjölnota poka á vægu verði, en hægt er að kynna sér úrvalið af fjölnota pokum hér í vefbúðinni

Veljum fjölnota og stefnum að því að verða plastpokalaus!