Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Rósavín

19.06.2017

Í júní leggjum við áherslu á að fræðast um rósavín í Vínbúðunum. Rósavín er ekki bara bleikur drykkur í glasi, en þau geta verið jafn ólík og þau eru mörg. Rósavín býr yfir þeim eiginleikum að vera frísklegt og henta þannig vel í sólinni, en einnig er það ágætis matarvín. Vínráðgjafar okkar hafa tekið saman fróðleik um rósavínið og hér getur þú kynnt þér helstu eiginleika rósavíns og skoðað uppskriftir af réttum sem henta vel með þessum sumarlega drykk.