Vínbúðin í Keflavík flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði mánudaginn 19. janúar og mun hér eftir bera heitið Vínbúðin Reykjanesbæ.
Viðskiptavinir í Reykjanesbæ verða væntanlega ánægðir með nýju Vínbúðina þar sem hún er björt og skemmtileg auk þess um hún stækkar um rúman helming. Allur bjór verður í kæli, afgreiðslukössum er fjölgað og auk þess er nóg af bílastæðum fyrir framan Vínbúðina. Aðstaða starfsfólks verður betri en áður og einnig er lager og vörumóttaka mun stærri.
![Vínbúðin Keflavík flytur þann 19.janúar](Portaldata/1/Resources/frettir/2009/Reykjanesbaer_ny_Vinbud2.jpg)
Nýja Vínbúðin er staðsett við nýjan verslunarkjarna við Krossmóa 4, þar sem Samkaup er til húsa. Vínbúðin þjónar yfir 20.000 viðskiptavinum á ári hverju.
Meðfylgjandi eru myndir frá framkvæmdum við standsetningu Vínbúðarinnar.