Lokað verður í Vínbúðunum á Selfossi og í Hveragerði í dag vegna rasks sem varð af völdum jarðskjálftans. Báðar búðirnar eru illa farnar og mikið brotið. Hreinsun er hafin, en óvíst er hvenær hægt verður að opna búðirnar. Bent er á að Vínbúðirnar á Hellu og Hvolsvelli eru opnar í dag. Nánar verður auglýst þegar hægt verður að opna á ný á Selfossi og í Hveragerði.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Vínbúðinni Hveragerði, en ljóst er að mikil vinna er framundan við að koma búðinni í stand.
![Lokað í dag á Selfossi og í Hveragerði](Portaldata/1/Resources/frettir/2008/Hveragerdi_skjalfti2.jpg)
![Lokað í dag á Selfossi og í Hveragerði](Portaldata/1/Resources/frettir/2008/Hveragerdi_skjalfti3_vefur.jpg)