Vikan fyrir verslunarmannahelgi er ein annasamasta vika ársins í vínbúðunum. Á síðasta ári komu tæplega 110 þúsund viðskiptavinir í vínbúðirnar þessa viku, en í hefðbundinni viku í júlí koma á milli 70 og 80 þúsund viðskiptavinirnir í vínbúðirnar.
![Sala áfengis fyrir verslunarmannahelgi](Portaldata/1/Resources/frettir/2007/Verslunarm.helgin-fjoeldi_vv.bmp)
Föstudagur er langstærsti söludagurinn í vínbúðunum þessa vikuna, sem aðrar, en milli 30‐35 þúsund viðskiptavinir koma í vínbúðirnar þann dag.
![Sala áfengis fyrir verslunarmannahelgi](Portaldata/1/Resources/frettir/2007/Verslunarm.helgin-seldir_l_trar.bmp)
Árið 2006 voru tæplega 700 þúsund lítrar seldir frá mánudegi til laugardags fyrir frídag verslunarmanna og var lítrafjöldinn svipaður og á árinu 2005.
![Sala áfengis fyrir verslunarmannahelgi. Hlutfall bjórs af heildarlítrasölu](Portaldata/1/Resources/frettir/2007/Verslunarm.helgin-hlutf.bj_rs.bmp)
Tæplega 79% af seldu magni er bjór, sem er svipað hlutfall og þegar árið í heild er skoðað.