Sala áfengis jókst um 3,8% í lítrum fyrstu sex mánuði ársins í samanburði við árið í fyrra. Þegar vöruflokkar eru teknir saman sést að sala á bjór jókst um 4,4% og léttvíni um 2,1% en á sama tíma var samdráttur í sterku áfengi um 1,1%.
![Salan í júní](Portaldata/1/Resources/frettir/2014/Breyting___magnsoelu14.JPG)
Í einstaka vöruflokkum var sala á rauðvíni og hvítvini minni á fyrstu sex mánuðunum á meðan sala á lagerbjór jókst um 3,9%.
![Salan janúar - júní](Portaldata/1/Resources/frettir/2014/Sala_jan-jun14.JPG)
Sala júnímánaðar var 3,2% meiri í ár en í fyrra. Í einstaka vöruflokkum varð aukning í sölu á lagerbjór um 3,9% á meðan að sala á rauðvíni, hvítvíni og ókrydduðu brennivíni og vodka er minni en á síðasta ári.
![Salan í júní](Portaldata/1/Resources/frettir/2014/Sala_jun14.JPG)
Sala tóbaks
Fyrstu sex mánuði ársins var aukning í sölu neftóbaks um tæp 36%. Sala vindlinga jókst um 6,5% og reyktóbaks um 6,1%. Samdráttur varð aftur á móti í sölu vindla um tæplega 1%.
![Tóbakssala í júní](Portaldata/1/Resources/frettir/2014/Tobak_jan-jun2014_2.JPG)