Ákvörðun hefur verið tekin um að hætta framleiðslu neftóbakshorna. Gera má ráð fyrir að birgðir klárist hjá ÁTVR í nóvember.
Íslenskt neftóbak hefur verið selt frá árinu 1941 í ýmis konar ílátum eins og dósum og krukkum en tóbakshornin komu fyrst í sölu árið 1992. Sala neftóbaks hefur dregist mikið saman undanfarin ár og vegna þess og hagræðingarkröfu er það mat ÁTVR að ekki sé forsvaranlegt að vera með fleiri en eina gerð umbúða undir neftóbak til sölu.
Eftir að birgðir klárast af hornum verður því einungis hægt að fá neftóbak í 50 gramma plastdósum.