Hagræðing og fækkun stöðugilda hjá ÁTVR

26.10.2026

ÁTVR hefur undanfarið unnið að skipulagsbreytingum í þeim tilgangi að auka hagkvæmni í rekstri, bregðast við minnkandi sölu og laga skipulag og ábyrgðarsvið að nýrri stefnu fyrirtækisins. Breytingarnar eru jafnframt liður í að mæta kröfu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um hagræðingu í rekstri.

Með breytingunum verður sviðum fyrirtækisins fækkað og ein staða framkvæmdastjóra lögð niður. Jafnframt verður stöðugildum á skrifstofu og í dreifingarmiðstöð fækkað um tæplega sex og ekki verður ráðið í allar lausar stöður næstu misserin.

Áætlað er að skipulagsbreytingarnar, ásamt öðrum hagræðingaraðgerðum, skili um 150 milljóna króna árlegum sparnaði þegar þær hafa komið að fullu til framkvæmda.

ÁTVR hefur frá árinu 2020 unnið markvisst að því að hagræða í rekstri og laga starfsemina að breyttum aðstæðum. Með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar hefur stöðugildum fækkað úr 356 í 292, eða um 18% á tímabilinu.