Uppskriftavefur Vínbúðarinnar lumar á ýmsum hugmyndum fyrir matgæðinga. Þar má finna fjölbreytt úrval uppskrifta sem henta ólíkum smekk og tilefnum, hvort sem leitað er að ljúffengum fiskrétti, gómsætum kjúklingarétti, grænmetisréttum eða freistandi eftirréttum.
Til að auðvelda valið er hægt að leita eftir mismunandi flokkum og finna þannig fljótt uppskriftir sem henta hverju sinni. Með hverri uppskrift fylgja einnig ráð frá vínráðgjöfum Vínbúðarinnar um heppilega vínpörun, sem getur hjálpað til við að draga fram bestu eiginleika bæði matar og víns.
Fyrir þau sem hafa áhuga á drykkjagerð er kokteilsíða Vínbúðarinnar einnig stútfull af hugmyndum. Þar má finna spennandi uppskriftir að fjölbreyttum kokteilum, bæði áfengum og óáfengum, sem henta jafnt hversdagslegum stundum sem og stærri tilefnum. Auk þess er þar að finna gagnleg ráð og góðar leiðbeiningar sem auðvelda gerð kokteila og hjálpa til við að ná sem bestum árangri.
Hvort sem markmiðið er að prófa eitthvað nýtt, finna innblástur fyrir helgarmatinn eða útbúa góðan drykk fyrir næstu veislu, þá er vel þess virði að kíkja á uppskrifta- og kokteilavef Vínbúðarinnar.
Njótið vel!