Sæktu samdægurs!
Vissir þú að þú getur fengið vefpöntunina þína afhenta samdægurs á höfuðborgarsvæðinu? Með því að versla á vinbudin.is færðu aðgang að okkar allra mesta vöruúrvali og sækir svo þangað sem þér hentar best, án aukakostnaðar. Ef þú klárar pöntunina fyrir kl. 13:00 á virkum dögum geturðu sótt hana strax seinna sama dag á eftirfarandi staði:
- Vínbúðin Dalvegi
- Vínbúðin Heiðrún
- Vínbúðin Skútuvogi
- Vínbúðin Skeifu
- Vínbúðin Álfrún (Hafnarfirði)
- Vöruafgreiðsla, Stuðlahálsi
Að sjálfsögðu er hægt að fá pantanir sendar í allar Vínbúðir landsins, auk þess sem hægt er að velja um sex aðra sérstaka afhendingarstaði.
Á Mínum síðum getur þú svo nýtt þér persónulega svæðið þitt á vefnum til að gera upplifunina enn betri. Þar getur þú skoðað eldri pantanir, fylgst með stöðu þinna pantana, búið til þinn eigin topplista, gefið vörum stjörnur og skrifað þín eigin minnisatriði. Einnig getur þú sparað tíma með því að endurpanta uppáhalds vörurnar þínar með aðeins einum smelli.