Frávísun Hæstaréttar í máli um sölu á Shaker Original Alcohol & Caffeine

19.02.2026

Þann 18. febrúar 2026 vísaði Hæstiréttur frá máli ÁTVR gegn Distu ehf. Hæstiréttur tók því ekki afstöðu til efnis málsins og því stendur dómur Landsréttar, frá 20. febrúar 2025.

Með dómi Landsréttar var felld úr gildi ákvörðun ÁTVR um að hafna umsókn Distu ehf. um sölu á vörunni Shaker Original Alcohol & Caffeine í 330 ml áldós (vnr. 26613) í reynsluflokki. Niðurstaða Landsréttar byggist meðal annars á því að umrædd vara teljist síder sem inniheldur koffín, en ekki áfengisblandaður orkudrykkur. Dómurinn felur í sér að ÁTVR er skylt að taka umsóknina til afgreiðslu á ný, verði þess óskað.

Þessi niðurstaða breytir ekki því að óheimilt er að selja áfengisblandaða orkudrykki í verslunum ÁTVR.