Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Fréttir

Samanburður á sölu fyrstu sjö mánuði áranna 2002 og 2001

02.08.2002

Sala áfengis og tóbaks var eins og sjá má á meðfylgjandi töflum, sem skipt er upp eftir vöruflokkum. Taflan tekur til sölu ÁTVR innanlands og sýnir samanburð við sömu mánuði sl. árs. Aukning í sölu á lítrum fyrstu sjö mánuði ársins 2002 miðað við sama tímabil ársins 2001 er 8,62%.

Drap ÁTVR kaupmanninn á horninu?

23.07.2002

Samtök verslunar og þjónustu - SVÞ - dreifa þessa dagana riti til stuðnings því að léttvín og bjór verði seldur í verslunum og bensínstöðvum. Ekkert er við að athuga þótt sú krafa sé höfð uppi af þeim hagsmunasamtökum sem hér eiga hlut að máli. Við rök þeirra fyrir kröfunni má þó gera ýmsar athugasemdir...

Samanburður á sölu fyrstu sex mánuði áranna 2002 og 2001

18.07.2002

Nú liggja fyrir sölutölur fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2002...

Nýr og glæsilegur vefur vínbúðar að verða tilbúinn

28.05.2002

Vefur vínbúðar hefur verið í vinnslu síðan á vormánuðum og hafa duglegir starfsmenn Strengs ásamt hjálp frá góðvinum þeirra í idega reynt að setja saman snyrtilegan og notendavænann vef sem allir ættu að geta notið...

ÁTVR opnar Vínbúð á Djúpavogi

28.05.2002

ÁTVR opnar vínbúð á Djúpavogi að Búlandi 1 í dag 15. maí. Vínbúðin er rekin í samvinnu við Kaupás....

Vínþjónar til ráðgjafar í vínbúðum ÁTVR í dag

23.05.2002

Fimmtudaginn 16. maí kl. 16 - 18 munu félagar úr Vínþjónasamtökum Íslands vera til ráðgjafar í nokkrum vínbúðum ÁTVR...

Fréttatilkynning: Kvöldsól

03.04.2002

Komið hefur í ljós að eftirgerjun hefur átt sér stað í nokkrum flöskum af íslenska berjavíninu Kvöldsól. Við eftirgerjun myndast kolsýra, hún eykur þrýsting í flöskum sem getur valdið því að tappinn skjótist úr, vínið fylgir á eftir og skilur eftir bletti sem erfitt getur verið að hreinsa...