Fréttir

Lokað sumardaginn fyrsta

22.04.2026

Við bendum viðskiptavinum á að lokað er í Vínbúðunum sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl. Miðvikudaginn 22. apríl verður opnunartími eins og á föstudögum í mörgum Vínbúðum. Hér er hægt að kynna sér nánar opnunartíma hverrar Vínbúðar.

Vínbúðin Smáralind lokar

20.04.2026

Verslun okkar í Smáralind lokar frá og með 1. maí. Við þökkum fyrir viðskiptin á liðnum árum og bendum á nálægar Vínbúðir á Dalvegi, Álfabakka og Garðabæ.

ÁRSSKÝRSLA ÁTVR 2025

08.04.2026

Árs – og samfélagsskýrsla ÁTVR fyrir árið 2025 er komin út á rafrænu formi. Í skýrslunni má finna ítarlegar upplýsingar um rekstur og starfsemi fyrirtækisins. Hagnaður ársins var tæpar 795 milljónir samanborið við tæpar 537 milljónir króna árið á undan, greiddur var 750 milljóna króna arður til ríkissjóðs fyrir árið 2025.

Fylgjumst með veðrinu

26.03.2026

Búið er að opna flestar Vínbúðir, en við hvetjum viðskiptavini til að fylgjast vel með áður en lagt er af stað. Búið er að loka Vínbúðinni á Reyðarfirði og á Kirkjubæjarklaustri hefur ekki náðst að opna enn þá..
Við uppfærum fréttina um leið ef einhverjar fréttir berast um frekari röskun á opnunartímum.

Páskarnir í Vínbúðunum

24.03.2026

Flestar Vínbúðir verða opnar lengur miðvikudaginn fyrir páska, en allar búðir eru lokaðar á skírdag, föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum skv. venju. Í lista yfir opnunartíma Vínbúða er hægt að sjá hvernig opið er yfir hátíðirnar í hverri búð fyrir sig. Við minnum á að einnig er hægt er að klára innkaupin í Vefbúðinni og sækja í hvaða Vínbúð sem er.

Afhent samdægurs!

11.03.2026

Vissir þú að hægt að fá Vefbúðarpöntun afhenta samdægurs í fimm Vínbúðir á höfuðborgarsvæðinu auk vöruafgreiðslu á Stuðlahálsi? Pantaðu þar sem úrvalið er mest hér á vinbudin.is og sæktu þangað sem þér hentar, án sendingarkostnaðar!

Lokað vegna rafmagnsleysis á Þorlákshöfn

06.03.2026

Lokað er vegna rafmagnsleysis í Vínbúðinni Þorlákshöfn í dag föstudaginn 6. mars. Skv. upplýsingum frá RARIK er rafmagnsleysið vegna truflunar í flutningskerfi Landsnets og áætlað að rafmagn komi á um kl. 18. Vínbúðin verður opnuð um leið og unnt er.

Lokað vegna veðurs á Austurlandi

02.03.2026

Vegna veðurs verður því miður ekki hægt að opna Vínbúðirnar á Kópaskeri, Vopnafirði né á Fáskrúðsfirði í dag, mánudaginn 2. mars. Einnig hefur Vínbúðinni Reyðarfirði verið lokað vegna veðurofsans

Páskabjórinn 2026

25.02.2026

Nú er páskabjórinn kominn í Vínbúðirnar en líkt og aðrar árstíðabundnar vörur er páskabjórinn seldur í takmarkaðan tíma. Sölutímabilið stendur til 4. apríl. Eins og áður er úr skemmtilegu úrvali páskabjóra að velja en í vöruleitinni er hægt að skoða hvað er í boði á hverjum tíma og í hvaða Vínbúðum varan fæst.

Frávísun Hæstaréttar í máli um sölu á Shaker Original Alcohol & Caffeine

19.02.2026

Þann 18. febrúar 2026 vísaði Hæstiréttur frá máli ÁTVR gegn Distu ehf. Hæstiréttur tók því ekki afstöðu til efnis málsins og því stendur dómur Landsréttar, frá 20. febrúar 2025..