Vörur

Seljið þið óáfengt vín?

ÁTVR selur ekki óáfengt vín enda er ÁTVR falið með lögum að annast smásölu áfengis og hefur til þess einkaleyfi. Sala á óáfengum drykkjum fellur því ekki að því hlutverki sem ÁTVR er markað í lögum, en hlutverk ÁTVR er að sinna smásölu áfengis og heildsölu tóbaks samkvæmt 1. mgr. 4. gr. laga nr. 86/2011 um verslun með áfengi og tóbak.

Í 1. og 2. mgr. 7. gr. laganna er mælt fyrir um að ÁTVR hafi einkaleyfi til að sinna fyrrgreindri starfsemi sbr. einnig 1. mgr. 10. gr. áfengislaga nr. 75/1998. Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. áfengislaga nr. 75/1998 þá er áfengi neysluhæfur vökvi sem í er að rúmmáli meira en 2,25% af hreinum vínanda.