Dreifingarmiðstöð ÁTVR óskar eftir að ráða sumarstarfsmann í vörumóttöku á lager. Viðkomandi þarf að geta tjáð sig og skrifað á íslensku.
Dreifingarmiðstöð ÁTVR sér um vörumóttöku frá birgjum og dreifingu vara í Vínbúðir. Skrifstofur og dreifingarmiðstöð eru að Stuðlahálsi 2.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka vöru
- Almenn lagerstörf
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfnikröfur
- Stundvísi og dugnaður
- Íslenskukunnátta
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Lyftarapróf er kostur
Starfshlutfall er 100%
Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri.
Sakavottorðs er krafist.
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.
Nánari upplýsingar: Eggert Ó. Bogason -
eggert@vinbudin.is - 560 7700
Sækja um starf