Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala áfengis dregst saman á milli ára

03.12.2009

Sala áfengis dregst saman á milli áraSala áfengis fyrstu 11 mánuði ársins er 1,8% minni í magni en árið 2008.  Á árinu hefur  sala á rauðvíni dregist saman en sala á hvítvíni aukist.   Sala á sterku áfengi þ.e. ókrydduðu brennivíni og vodka hefur dregist saman 11,5% í magni.  Enn meiri samdráttur hefur orðið í sölu blandaðra sterkra drykkja eða 37%.

 

Salan í nóvember dróst saman um 4,1% samanborið við nóvember í fyrra.  Þar vegur þungt minni sala á lagerbjór og sterkum drykkjum.

 

 

 

 

Sala áfengis dregst saman á milli ára