Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala áfengis fyrstu tíu mánuði ársins

03.11.2011

Sala áfengis fyrstu tíu mánuði ársinsSala áfengis í lítrum var 3,1% minni yfir tímabilið janúar - október í samanburði við árið 2010. Ef áfengi er flokkað í bjór, léttvín og sterkt áfengi þá hefur sala á bjór dregist saman um 4,3% og sterkt áfengi um 3,5%.   Hins vegar hefur sala á léttvíni aukist á milli ára um 2,3%.


Salan í október er 11,8% minni en í október í fyrra.  Flestir viðskiptavinir koma í Vínbúðirnar á föstudögum og laugardögum og  í samanburði á milli ára þarf alltaf að hafa í huga skiptingu þessara vikudaga á milli mánaða.  Ef september og október eru teknir saman sést að samdrátturinn er 2,9% sem er svipað og árið í heild.

 

 

Sala áfengis fyrstu tíu mánuði ársins