Brúnn. Smásætur, mjúkur, lítil beiskja. Kirsuberjasteinn, marsípan, kandís, malt, tunna.
Flæmskt rauð- og brúnöl
Belgísk öl þar sem jafnvægi á milli maltsætu, mjólkursýru og ediksýru skiptir öllu máli. Einkenni eru létt til há sýra, malt, rauð ber, kirsuber, kakó, fíkjur og eikaráhrif, jafnvel þótt bjórinn hafi ekki komist í snertingu við eik. Skiptist í Flanders rauðöl og Flanders brúnöl, þar sem brúnölin hafa þéttari maltkarakter og þurrkaða ávaxtatóna ásamt örlítið minni sýru en finnst í rauðölinu.
Súrbjór
Fjölbreyttir bjórar, yfirleitt öl, sem samkvæmt hefð innihalda hátt hlutfall hveitis, sem gengið hafa í gegnum ferli sem gerir þá súra. Sýrustig þessara bjóra er misjafnt og fer í raun eftir því hvaðan bjórarnir koma og hverju bruggarinn sækist eftir. Súrbjórar geta verið hreinir og ferskir eða innihaldið ýmsar bakteríur og gerafbrigði, eins og Brettanomyces sem gefur þeim ilm og bragð af heyi, sveit og plástri, svo fátt eitt sé nefnt. Sumir eru látnir liggja á ávöxtum eins og kirsuberjum. Vínandastyrkur getur verið frá 3% til 8%. Heimalönd þessara bjóra eru Belgía og Þýskaland, en önnur lönd hafa verið að sækja í sig veðrið, sér í lagi Bandaríkin.Bjórar í þessum flokki eru bestir framreiddir við um 7-10°C Sjá minna