Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Tilbreyting í vöruúrvali

Tímabilsflokkur
Í tímabilsflokki eru vörur sem aðeins eru fáanlegar á ákveðnum tímum árs, svo sem þorra, páskum, jólum, október, sumar og vetur. Sala í tímabilsflokki stendur í takmarkaðan tíma, að jafnaði 4 til 7 vikur, en vetrar- og sumartímabil eru 4 mánuðir.

Sérflokkur
Venja er að þegar vara lýkur reynslusölu án flutnings í kjarna, þá sé skoðað hvort varan auki á einhvern hátt fjölbreytni eða gæði vöruúrvals Vínbúðarinnar. Ef varan gerir það er hún færð í sérflokk. Vara sem þannig færist í sérflokk er þar í a.m.k. 12 mánuði, en eftir það þarf hún að standast árangursviðmið. Að jafnaði eru vörur ekki lengur en 5 ár í sérflokki. Vínbúðin auglýsir einnig eftir vörum til sölu í sérflokki.
Vörur í sérflokki eru að jafnaði í takmarkaðri dreifingu í einni eða fáum vínbúðum.