Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Spínatsalat

með grilluðum lambalundum

Fjöldi
4
Innihaldsefni 400 g lambalundir 6 stk. döðlur 150 ml sojasósa 1 hvítlauksrif 100 ml vatn SALAT 1 poki spínat Fræ úr ¼ granatepli 1 poki litlar mozzarella kúlur (eða 1 stór kúla skorin niður) 4 msk. steiktur laukur 2 mandarínur (eða mandarínur í dós) MINTU OG KÓRÍANDER SALATDRESSING ½ búnt mInta ½ búnt kóríander 2 stk. skalottlaukar 2 msk. eplaedik 150 ml ólífuolía
Aðferð
  1. Setjið sojasósu í pott ásamt döðlum, fínt söxuðum hvítlauk og vatni.
  2. Fáið upp suðu og maukið döðlurnar vel.
  3. Kælið marineringuna og hellið síðan yfir kjötið. Marinerið í 1 klst. eða lengur.
  4. Grillið lambalundirnar í 2-3 mínútur á hvorri hlið.

 

SALAT

  1. Skolið spínatið vel og setjið í skál ásamt restinni af hráefninu.
  2. Veltið öllu upp úr salatdressingunni.
  3. Skerið lambið niður og bætið út í salatið. 

 

MINTU OG KÓRÍANDER SALATDRESSING

Setjið allt í blandara og blandið vel saman. 

 

VÍNIN MEÐ

Með salatinu er gott að drekka hvítvín frá Alsace eða létt og ávaxtaríkt crianza rauðvín frá Spáni. Pinot Noir þrúgan væri líka hentug.

Uppskrift fengin frá Grillmarkaðnum
Fleiri Lambakjötsréttir