Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Stærri kælir í Vínbúðinni Skeifunni

19.02.2008

Stærri kælir í Vínbúðinni SkeifunniNú standa yfir spennandi framkvæmdir í vínbúðinni Skeifunni þar sem kælirinn er stækkaður til muna. Í framhaldi verður hægt að koma öllum bjór Vínbúðarinnar fyrir í kælinum og koma þannig til móts við óskir viðskiptavina.

Starfsfólk Vínbúðarinnar hefur ekki látið sitt eftir liggja í breytingunum og allir lagst á eitt svo framkvæmdirnar gangi hratt og snurðulaust fyrir sig. Að sögn verslunarstjóra hafa viðskiptavinir sem lagt hafa leið sína í Skeifuna sýnt mikla þolinmæði og margir hafa tjáð ánægju sína með breytinguna.